Maður ætti kannski að gera svona smá annál?
Janúar-Febrúar: Ég get ekki sagt að ég muni almennilega hvað ég gerði í Janúar en þá var ég búin að eiga bílinn minn í mánuð.. Svo var ákveðið hvert ætti að fara í útskriftarferðinni 2007 MS í janúar eða Febrúar... í febrúar byrjaði ég í sambandi sem endaði í Maí... Sé ekki eftir því en myndi ekki endurtaka það... OG jii ég trúi ekki að ég hafi næstum gleymt 29. janúar... en þá fæddist hann Arngrímur Benedikt Kristinsson =) Sætasti litli strákurinn á Íslandi =) Svo var náttúrulega árshátíðin í Febrúar.. og var hún ein sú skemmtilegasta hingað til...
Mars: skóli og vinna... man ekki meir...
Apríl: Mamma átti afmæli og prófin byrja...
Maí: Pabbi og Ragga eiga afmæli og prófin klárast... 3 árið mitt í MS er BÚIÐ :'( Byrja að vinna í Samskip
Júní: Vinna, sofa og eitt fyllerí með Kristjönu og Lilju... Andrea verður nítján...
Júlí: Sama og Júni.. Borga útskriftarferðina til fulls... Hætti að vinna hjá Samskip seinasta daginn í Júlí...
ÁGÚST: PAKKA fyrir RHODOS og svo 2 VIKUR Á RHODOS... skemmtilegustu 2 vikur lífs míns án efa sko!!!!!!!! Langar AFTUR oooo mig langar svo að fara aftur.... Ég varð nítján ára daginn áður en við komum heim... og þá var DJAMMAÐ!!!! fór samt snemma uppá hótel með hinni ofurölvuðu Kristjönu... =P gat ekki látið hana fara að ráfa um eina...
September: Skólinn byrjaður á fullu og busaballið kemur og fer og var það eitt af þeim skemmtilegustu... Bjórkvöld Domino's og ég og Hrefna kynntumst almennilega í fyrsta skiptið.. búnar að vinna saman í næstum ár
heheh löv:***
Október: Bára nítján ára og Októberfest kemur og fer og ég tekin af löggunni í fyrsta skipti í venjulegt tjekk en ökuskírteinið mitt er útrunnið og ég með einum of marga farþega og löggan stoppar mig fyrira UTAN húsið sem ég er að fara í *#%&#$%#&#
Nóvember: Hin víðfræga '85 vika gengur í garð og var það seinasta vika og ball okkar stelpnanna á þessu ári í MS =(=(=(=(....
Desember: prófin byrja og hefur mér aldrei gengið jafn illa.... en ég náði þó öllu og þarf bara að bæta mig á þessu ári... Rebekka varð svo 19 í miðjum prófunum... jeijjj :/ haha.. svo fer ég að vinna í samskip í eina viku fyrir jól og einn dag eftir jól.. Svo komu JÓLIN og voru þetta ÆÐISLEG JÓL... Skemmtilegasti gamlársdagur sem ég hef upplifað líka!!! hann var ÆÐI PÆÐI!! haha...
Takk fyrir árið elsku stelpurnar mínar :*** Gaman að eiga ykkur að!!!! =) ;***